Brasilíski markvörðurinn Ederson gæti byrjað gegn Liverpool er liðin mætast klukkan 16:30 á Anfield í dag.
Ederson fór meiddur af velli í 1-1 jafntefli Manchester City gegn Atalanta í Meistaradeild Evrópu í vikunni.
Pep Guardiola. knattspyrnustjóri City, sagði frá því í á fréttamannafundi að Ederson myndi ekki spila leikinn en treyja hans er þó klár fyrir leikinn í dag.
Sky Sports er með beina útsendingu frá leiknum en myndefni var birt úr klefanum þar sem búningur Ederson var klár.
Það hefur verið fastlega gert ráð fyrir því að Claudio Bravo standi á milli stanganna í leiknum. Byrjunarliðin verða tilkynnt eftir hálftíma.
😳 An image on Sky Sports seems to show Ederson's shirt in the dressing room...
— Man City Xtra (@City_Xtra) November 10, 2019
[@ManCityMEN]#LIVMCI pic.twitter.com/bBxOEMFhK1
Athugasemdir