10.11.24 - 22:11
Brynjar Ingi Erluson
Ítalía: Hið „ómögulega“ gerðist í Mílanó

Hakan Calhanoglu fór úr hetju í skúrk í stórleik helgarinnar

Mynd: Getty Images

Inter og Napoli gerðu stórmeistarajafntefli í Seríu A á Ítalíu í kvöld.

TENGT EFNI
Calhanoglu við RÚV: Vanalega klúðra ég aldrei, það er ómögulegt
Skoski miðjumaðurinn Scott McTominay skoraði mark Napoli á 23. mínútu.
Hornspyrna rataði á Amir Rahmani sem stýrði honum til McTominay sem náði að pota boltanum inn í markið.
Tyrkneski miðjumaðurinn Hakan Calhanoglu jafnaði metin áður en hálfleikurinn var úti.
Alessandro Bastoni fann Calhanoglu sem náði að snúa fyrir utan teig áður en hann hamraði boltanum í boga og efst í hægra hornið. Stórglæsilegt mark.
Þegar um fimmtán mínútur voru eftir af leiknum fékk Inter vítaspyrnu er Denzel Dumfries var tekinn niður í teignum. Calhanoglu, sem sagði í viðtali á RÚV eftir landsleikinn gegn Íslandi að það væri ómögulegt fyrir hann að klúðra víti, gerði hið ómögulega og skaut vítaspyrnunni í stöng.
„Varðandi vítið þá klúðra ég vanalega aldrei því að það er ómögulegt. En ég rann,“ sagði Calhanoglu við RÚV, í síðasta mánuði.
Liðunum tókst ekki að finna sigurmark og endaði leikurinn 1-1. Napoli fer aftur á toppinn með 26 stig en Inter er í 4. sæti með 25 stig.
Inter 1 - 1 Napoli
0-1 Scott McTominay ('23 )
1-1 Hakan Calhanoglu ('43 )
1-1 Hakan Calhanoglu ('74 , Misnotað víti)
Monza 0 - 1 Lazio
0-1 Mattia Zaccagni ('36 )