10.11.26 - 23:41
Brynjar Ingi Erluson
Dagný Brynjars leggur skóna á hilluna (Staðfest)

Mynd: Selfoss

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: West Ham

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Selfoss

Dagný Brynjarsdóttir hefur tilkynnt að hún sé búin að leggja skóna á hilluna eftir magnaðan feril hér heima, erlendis og með íslenska landsliðinu.
Dagný er 35 ára gömul og ólst upp á Hellu, um 850 manna bæ, þar sem fótboltaferill hennar hófst. Hún æfði með strákunum hjá KFR og lék með sameiginlegu liði Ægis og KFR.
Árið 2007 gekk hún til liðs við Val þar sem hún varð fjórum sinnum Íslandsmeistari og þrisvar sinnum bikarmeistari.
Hún hélt til Bandaríkjanna í háskólanám árið 2011 og náði þar stórkostlegum árangri með Florida State-háskólanum. Árið 2014 varð hún bandarískur háskólameistari og hafnaði í öðru sæti í kjörinu um MAC Hermann-bikarinn, sem er veittur besta háskólaleikmanni landsins. Þá setti hún einnig fjölmörg met hjá skólanum.
Dagný sneri aftur til Íslands árið 2014 og samdi við Selfoss þar sem hún lék næstu tvö tímabil, en á þeim tíma fór hún einnig á láni til Bayern München í Þýskalandi.
Eftir dvölina hjá Selfossi hélt hún aftur til Bandaríkjanna og samdi við Portland Thorns í NWSL-deildinni.
Þar varð hún deildarmeistari með liðinu og vann síðan úrslitakeppnina árið eftir. Dagný eignaðist sitt fyrsta barn á meðan hún var hjá Portland og lék því ekkert árið 2018. Hún sneri aftur til æfinga árið 2019 áður en hún gekk á ný í raðir Selfoss.
Dagný hafði þó enn mikla löngun til að spila erlendis og árið 2021 rættist æskudraumur hennar þegar hún samdi við West Ham, félagið sem hún hafði haldið með frá barnsaldri.
Hún lék með West Ham næstu fjögur árin og varð afar vinsæl hjá félaginu þar sem hún bar meðal annars fyrirliðabandið.
Dagný yfirgaf West Ham á síðasta ári og sneri aftur heim til Selfoss þar sem hún hefur nú ákveðið að leggja skóna á hilluna. Hún lék þrjá leiki í sumar, en nú er komið að leiðarlokum á mögnuðum ferli.
Alls lék Dagný 122 landsleiki fyrir Íslands hönd og skoraði 38 mörk. Þá tók hún þátt í fjórum Evrópumótum með landsliðinu og skipaði sér í hóp bestu fótboltakvenna sem Ísland hefur alið af sér.
Sannkölluð goðsögn í íslenskum kvennafótbolta.
Dagný kvaddi fótboltann með fallegum og tilfinningaþrungnum orðum á Instagram þar sem hún rifjaði upp vegferðina og þakkaði öllum þeim sem höfðu verið hluti af henni.
„Kæri fótbolti. Fyrsta ástin mín og þvílík vegferð sem þetta hefur verið.“
„Frá 850 manna bæ í að búa í morgun með milljón manns. Nógu hugrökk til að dreyma stórt. Eftir 29 ár af keppnisfótbolta, þar á meðal 21 ár á hæsta stigi, er tími til kominn að kalla þetta gott.“
„Ég elska leikinn enn og mun alltaf gera, en núna er ég ekki lengur reiðubúinn að gefa allt sem ég á. Hungrið, metnaðurinn og drifkrafturinn að stórfengleikanum er með nýjan tilgang. Ég vil vera til staðar fyrir syni mína í gegnum öll skrefin og hjálpa þeim að eltast við drauma sína, hverjir sem þeir gætu svosem verið.“
„Ég hóf ferilinn ásamt strákunum og bestu vinum mínum heima hjá KFR og kláraði hann með félaginu sem ég studdi í gegnum alla mína barnsæsku er eitthvað sem ég hefði aldrei getað ímyndað mér. Frá KFR, Val, Selfoss, Florida State, Bayern München, Portland Thorns og West Ham, öll félög sem spiluðu mikilvæga rullu á vegferð minni og hjálpuðu til við að móta manneskjuna sem ég er í dag.“
Dagný rifjaði einnig upp árin með íslenska landsliðinu og stoltið sem fylgdi því að klæðast landsliðstreyjunni.
„Ísland. Yfir 100 landsleiki og átján ár að klæðast landsliðsstreyjunni. Það hafa verið ótrúleg forréttindi og eitthvað sem ég er mjög svo stolt af. Að standa á vellinum á leikvöngum um allan heim og syngja þjóðsönginn með allri þjóðinni að styðja við bakið á mér er eitthvað sem ég mun aldrei gleyma.“
„Ég er svo þakklát fyrir öll tækifærin, áskoranirnar, lærdóminn, titlana, bikarana, vinátturnar og ógleymanlegu augnablikin. Ég er jafn þakklát öllum sem ég hitti á leiðinni, liðsfélaga, þjálfara, starfsliðið, andstæðinga, stuðningsmenn og vini. Takk öll fyrir að gera þessa vegferð sérstaka.“
Þá sendi hún fjölskyldu sinni sérstakar þakkir fyrir stuðninginn í gegnum árin.
„Ég er sérstaklega þakklát eiginmanni mínum, sonum, foreldrum, fjölskyldu og vinum. Þökk sé ykkur gat ég elt drauma mína og lifað þá. Takk fyrir að vera til staðar í gegnum alla vegferðina.“
„Ég yfirgef leikinn fyllt af stolti og þakklæti, með allan þennan lærdóm og minningar sem ég tek með mér inn í næsta kafla lífsins. Ég hlakka til að eyða meiri tíma með fjölskyldunni og vinunum, þar sem ég mun taka fagnandi á móti því sem kemur næst. Ég loka þessum kafla með fullt hjarta og opna næsta með spennu fyrir því sem framtíðin ber í skauti sér. Meiri tími með fjölskyldunni, meiri fótbolti að sjálfsögðu og vonandi mörg ný ævintýri. Takk fyrir allt, fótbolti,“ sagði Dagný á Instagram.