10.11.26 - 22:06
Brynjar Ingi Erluson
Meistaradeild kvenna: Man City of stór biti fyrir Íslendingaliðið

Man City skorar þriðja markið gegn Cecilíu

Mynd: EPA

Cecilía átti nokkrar góðar vörslur í leiknum

Íslendingalið Inter tapaði fyrir Manchester City, 4-1, í deildarkeppni Meistaradeildar Evrópu í kvennaflokki í kvöld.
Cecilía Rán Rúnarsdóttir og Karólína Lea Vilhjálmsdóttir voru báðar í byrjunarliði Inter sem byrjaði af miklum krafti gegn Manchester City. Elisa Bartoli kom heimakonum yfir á 24. mínútu þegar hún skallaði fyrirgjöf í netið.
City svaraði hins vegar fyrir lok fyrri hálfleiks með tveimur mörkum frá Aoba Fujino, en Cecilía átti litla möguleika á að verja þau.
Í síðari hálfleik bætti City við tveimur mörkum. Kerstin Casparij skoraði það fyrra með skoti sem Cecilía hefði mögulega átt að verja, áður en Grace Clinton gerði fjórða markið. Clinton fékk þá boltann á fjærstönginni og átti laust skot sem lak í netið.
Cecilía átti þó góðan leik þegar á heildina er litið og varði sjö skot, en Inter fóru sömuleiðis illa með mörg færi.
Frábær endurkoma hjá City sem er nú með sex stig eftir fjóra leiki, en Inter er áfram með fjögur stig.
Glódís Perla Viggósdóttir sat allan tímann á varamannabekk Bayern München sem vann góðan 2-1 útisigur á Paris Saint-Germain.
Glódís er að jafna sig á hnémeiðslum, en Bayern þurfti ekki á kröftum hennar að halda að þessu sinni. Bæjarar komust í 2-0 forystu í fyrri hálfleik eftir sjálfsmark Katarzyna Kiedrzynek og mark frá Klöru Buhl.
PSG minnkaði muninn úr vítaspyrnu þegar um hálftími var eftir, en nær komust heimakonur ekki.
Bayern er nú með átta stig og komið upp í annað sæti eftir fjóra leiki, en PSG situr í níunda sæti með fimm stig.
Roma marði þá 2-1 sigur á Servette frá Sviss. Ítalíumeistararnir skoruðu tvö mörk á níu mínútna kafla í fyrri hálfleik áður en Gloria Marinelli minnkaði muninn úr vítaspyrnu þegar stundarfjórðungur var til leiksloka.
Þetta var fyrsti sigur Roma í Meistaradeildinni á tímabilinu, en liðið er nú með fjögur stig.
Roma 2 - 1 Servette Chenois
1-0 Kayleigh van Dooren ('25 )
2-0 Alayah Pilgrim ('34 )
2-1 Gloria Marinelli ('74, víti )
Inter 1 - 4 Manchester City
1-0 Elisa Bartoli ('24 )
1-1 Aoba Fujino ('33 )
1-2 Aoba Fujino ('44 )
1-3 Kerstin Casparij ('56 )
1-4 Grace Clinton ('70 )
PSG 1 - 2 Bayern
0-1 Katarzyna Kiedrzynek ('29, sjálfsmark )
0-2 Klara Buhl ('40 )
1-2 Paulina Dudek ('65 )