10.11.26 - 23:50
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
- Skrifar frá La FincaGylfi mætti fyrr út og æfði einn: Ekkert það skemmtilegasta í heimi
Auglýsing

Á æfingu dagsins.

Mynd: KSÍ

Íslandsmeistari með Víkingi.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Spilaði keppnisleiki með landsliðinu í síðasta mánuði í fyrsta sinn í tvö ár.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Á æfingu dagsins.

Mynd: KSÍ

Gylfi Þór Sigurðsson er klár í slaginn fyrir leikina tvo í Þjóðadeildinni. Gylfi, sem er leikmaður Víkings, hefur dvalið á Spáni síðustu daga, æft einn á fótboltavöllunum og einnig spilað golf.
Miðjumaðurinn ræddi við Fótbolta.net eftir æfingu dagsins.

„Menn eru að koma sjóðandi heitir inn í þetta verkefni, flestir. Ég held að það séu margir að spila mjög vel, spila með sínum liðum og að standa sig frábærlega. Það er auðvitað jákvæður hlutur," segir Gylfi.
Hvernig er að sjá Orra Stein, Andra Lucas og svo Brynjólf alla vera að skora?
„Bara geggjuð samkeppni. Alltaf gott að vera með framherja, sem eru að spila vel. Þetta eru bara miklir markaskorarar. Það eru líka aðrir leikmenn í liðinu að spila vel með sínum liðum og spila stór hlutverk í sínum félagsliðum. Það er jákvætt fyrir liðið og mun vonandi nýtast okkur."
Einn að hlaupa
Að þér persónulega, hvernig er að koma inn í landsliðsverkefni þegar tvær vikur eru síðan þú spilaðir síðast?
„Það er svolítið öðruvísi. Auðvitað kærkomið að fá smá frí, nokkra daga, en síðan var bara æft og tekið því rólega. Síðan fékk ég leyfi til að æfa á völlunum hérna síðustu daga áður en að liðið kom saman. Þannig það er bara öðruvísi, annað en ég var vanur, en bara mjög fínt."
Ertu þá að æfa einn hérna á völlunum?
„Já, því miður. Ég var að hlaupa, hlaupa einn. Ekkert það skemmtilegast í heimi en maður verður að gera eitthvað til að halda sér í standi."
Gylfi var á léttu nótunum spurður hvort hann hefði ekki fundið einhvern til þess að fara í markið.
„Nei, því miður, þeir voru uppteknir við að slá grasið og setja einhverjar línur og gera allt klárt fyrir hópinn þannig að ég fékk þá ekki til að fara í markið."
Búinn að jafna sig eftir rifbeinsbrot
Þú varst að glíma aðeins við meiðsli, rifbeinsbrot, í síðasta landsliðsverkefni. Hvernig er skrokkurinn?
„Það er mun betra. Strax þegar ég fékk nokkra daga í frí þá einhvern veginn jafnaði þetta sig bara mjög fljótt og ég vona að þetta sé nú eiginlega bara alveg búið núna,"
Engir keppnisleikir fyrir næsta landsliðsverkefni
Gylfi er, eins og fyrr segir leikmaður Víkings, sem spilar sinn næsta keppnisleik þegar Íslandsmótið hefst næsta vor. Hann fékk kannski pínu ótímabæra spurningu varðandi næsta landsliðsverkefni sem verður í lok mars.
„Ég ætla nú fyrst og fremst að klára þetta verkefni en síðan auðvitað mun ég taka mér viku, tvær vikur kannski í smá frí frá fótbolta, þótt ég sé kannski að eitthvað að hlaupa eða lyfta eða synda til að halda mér í standi. Síðan er ég að koma heim einhvern tímann í byrjun desember og þá bara byrja ég að æfa aftur á fullu. Ég á eftir að setjast niður kannski og svona plana nákvæmlega hvernig er best að toppa á réttum tíma."
„Það verður ekkert mikið frí hjá mér. Við förum að æfa fljótlega aftur í Víkingi þannig að ég mun bara reyna að æfa eins mikið og ég get og spila sem flesta leiki í vetur og vera bara í góðu standi, hvort það sé fyrir landsliðið eða bara Víking. Fyrir mig sjálfan þá held ég að það sé þægilegast að halda áfram í staðinn fyrir að vera að taka eitthvað langt frí og þurfa að byrja upp á nýtt," segir Gylfi.