Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 11. janúar 2021 22:44
Brynjar Ingi Erluson
Holland: Kristófer Ingi í sigurliði
Kristófer Ingi hefur verið öflugur á þessu tímabili með Jong PSV
Kristófer Ingi hefur verið öflugur á þessu tímabili með Jong PSV
Mynd: Getty Images
Kristófer Ingi Kristinsson var í byrjunarliðinu hjá unglinga- og varaliði PSV er liðið vann Dordrecht 3-2 í hollensku B-deildinni í kvöld.

Íslenski sóknarmaðurinn hefur spilað vel með liðinu frá því hann kom frá franska liðinu Grenoble Foot í ágúst en hann er með 6 mörk og 1 stoðsendingu í 19 leikjum.

Hann spilaði allan leikinn er PSV vann Dordrecht 3-2 í kvöld en PSV er í 16. sæti deildarinnar með 19 stig á meðan Dordrecht er á botninum með 11 stig.

Næsti leikur PSV er gegn NAC Breda þann 18. janúar næstkomandi.
Athugasemdir
banner
banner