Fotbolti.net
11.02.22 - 06:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Enginn mættur til að verðlauna Reykjavíkurmeistarana - „Blaut tuska"

Enginn mættur til að verðlauna Reykjavíkurmeistarana - „Blaut tuska"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Þróttur lagði Fjölni í gær, 1-6 urðu lokatölur sem þýddi að Þróttur varð Reykjavíkurmeistari í fyrsta sinn.

Ef Þróttur hefði ekki unnið hefði Valur átt möguleika á því að hirða toppsætið í mótinu en Þróttarar unnu sannfærandi sigur í gærkvöldi. Liðið tapaði tveimur stigum í mótinu en fyrir lokaleikinn hjá Val, sem fram fer í dag, hefur liðið tapað þremur stigum - gegn Þrótti í vikunni.
Það vakti athygli að enginn var mættur til að verðlauna sigurvegara mótsins í gærkvöldi. Knattspyrnuráð Reykjavíkur stendur fyrir Reykjavíkurmótinu í knattspyrnu og hefur gert í yfir hundrað ár.

Valsarar unnu mótið í karlaflokki á sunnudag og fengu verðlaunin afhent strax að leik loknum. Þar var leikinn úrslitaleikur en í kvennaflokki var það efsta liðið í riðlinum sem varð meistari.

„Það er búið að leggja ógeðslega mikla vinnu í kvennastarfið og uppbygginguna hjá Þrótti. Eftir leik stóðu bara allir og horfðu hver á annan. Hvað? Engin verðlaunaafhending? Enginn bikar?“ segir Egill Atlason, sjúkraþjálfari Þróttar, í viðtali við Vísi.

„Ég veit ekki hvort þær eigi að mæta í hálfleik á morgun á Valsleiknum eins og einhver 2. flokkur," sagði Egill en ástæða knattspyrnuráðsins fyrir vöntun á verðlaunaafhendingu var sú að verðlaun væru ekki veitt fyrr en eftir að mótinu lýkur. Tveir leikir eru eftir af mótinu en þeir breyta engu um niðurstöðuna

„Þetta var algjört móment fyrir þennan klúbb sem var að vinna í fyrsta skipti og ágætis stemmning fyrir nokkra Þróttara sem mættu. En þetta var blaut tuska í andlitið á stelpunum," bætti Egill við.

Heimild: Vísir

Enginn mættur til að verðlauna Reykjavíkurmeistarana - „Blaut tuska"
Canon

Mynd: Einar Jónsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.