Fotbolti.net
11.04.23 - 06:00
Elvar Geir Magnússon

Í BEINNI 12:00 - Dregið í 32-liða úrslit bikarsins

Birkir Sveinsson, mótastjóri KSÍ, er bestur Íslendinga í að draga.

Birkir Sveinsson, mótastjóri KSÍ, er bestur Íslendinga í að draga.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

Mjólkurbikarinn
Dregið verður í 32-liða úrslit Mjólkurbikars karla í dag, þriðjudag. Fylgt verður með athöfninni í beinni textalýsingu hér á Fótbolta.net.

Drátturinn hefst kl. 12:00 og fer hann fram á Melavelli á 1. hæð í höfuðstöðvum KSÍ.
32-liða úrslit Mjólkurbikars karla fara fram dagana 19.-21. apríl, en liðin í Bestu deild karla koma nú inn í keppnina ásamt þeim 20 félögum sem unnu sína leiki í 2. umferð.

Þessi lið eru í pottinum:
Besta-deildin: Breiðablik, FH, Fram, Fylkir, HK, ÍBV, KA, Keflavík, KR, Stjarnan, Valur, Víkingur.
Lengjudeildin: Fjölnir (ef liðið vinnur Kríu), ÍA, Grindavík, Grótta, Leiknir, Njarðvík, Selfoss, Þór, Þróttur, Ægir.
2. deild: Dalvík/Reynir, KFA, KFG, Sindri, Þróttur V.
3. deild: Kári, Magni.
4. deild: KH, Uppsveitir.
5. deild: RB, Kría (ef liðið vinnur Fjölni).

Í beinni

12:23Þar með er drættinum lokið.
Leikið verður 19., 20., og 21. apríl. Miðvikudagur, fimmtudagur og föstudagur.

Aðeins einn Bestu deildarslagur í 32-liða úrslitum, Stjarnan - ÍBV.

Leikjaniðurröðun birtist eftir um hálftíma eða svo.
12:22VALUR - RB
RB úr Reykjanesbæ.
12:21FJÖLNIR/KRÍA - BREIÐABLIK
Sigurliðið í kvöld mætir Breiðabliki.
12:21ÆGIR - FH
Hafnfirðingar fara í Þorlákshöfnina.
12:20
Ægir fær heimaleik. Baddi Borgars að sjálfsögðu mættur, saddur og sæll. Hvað mun hann draga?
12:20LEIKNIR - SELFOSS
Vigfús Arnar, þjálfari Leiknis, sá um að draga. Lengjudeildarslagur.
12:18KEFLAVÍK - ÍA
Siggi Raggi dregur sitt gamla félag.
12:18
Keflavík fær heimaleik. Siggi Raggi dregur. Hress eftir úrslitin í gær.
12:18STJARNAN - ÍBV
Hörkuslagur framundan í Garðabæ.
12:17
Stjarnan fær heimaleik. Gústi Gylfa mætir á svið til að draga.
12:17GRÓTTA - KH
Hlíðarendamenn á Nesið.
12:16
Grótta fær heimaleik. Addi Bomba sér um að draga.
12:16KR - ÞRÓTTUR VOGUM
Hressandi viðureign.
12:16
KR fær heimaleik. Kennie Chopart sér um að draga.
12:15FRAM - ÞRÓTTUR REYKJAVÍK
Reykjavíkurslagur.
12:15
Fram fær heimaleik. Hlynur Atli mætir til að draga.
12:14NJARÐVÍK - KFA
Arnar Hallsson þjálfari Njarðvíkinga sá um að draga. Mikael Nikulásson mætir aftur til Njarðvíkur!
12:14
Njarðvík fær heimaleik.
12:13KA - UPPSVEITIR
Stórleikur framundan!
12:12
KA fær heimaleik.
12:12SINDRI - FYLKIR
Fylkismenn fara austur.
12:12KÁRI - ÞÓR AKUREYRI
Þórsarar í Akraneshöllina.
12:11
Kári frá Akranesi fær heimaleik. Andri Júlíusson sér um að draga.
12:11VÍKINGUR REYKJAVÍK - MAGNI
Nikolaj Hansen sá um að draga andstæðing ríkjandi bikarmeistara.
12:10HK - KFG
Stutt að fara fyrir Garðbæinga.
12:09
HK fær heimaleik í Kórnum.
12:09GRINDAVÍK - DALVÍK/REYNIR
Fyrsta viðureignin úr pottinum.
12:08
Fyrsta heimalið úr pottinum er Grindavík.
12:07
Ingólfur Hannesson fyrrum íþróttafréttamaður og Klara Bjartmarz framkvæmdastjóri KSÍ aðstoða við dráttinn.
12:06Drátturinn er opinn
Allir geta mætt öllum. Fyrst er dregið heimalið og svo mætir fulltrúi þess liðs upp á svið og dregur andstæðing.
12:06
Í forkeppninni léku 66 félög, nú bætast við 12 lið úr Bestu deildinni svo alls er það 78 lið sem taka þátt í keppninni í ár.
12:05Birkir er mættur á svið!
og tekur til máls.
12:04
Sviðið er klárt og mér sýnist Birkir vera að gera sig tilbúinn að stíga á stokk og hefja dráttinn.
12:03
Svo bregðast krosstré sem önnur. Birkir Sveins mótastjóri viðurkennir að eitt sinn hafi dráttur mistekist hjá sér, týndist ein kúla. Þurfti að draga aftur eftir að kúlan fannst. En það er langt síðan það var.

Gleymum því ekki þegar Meistaradeildardrátturinn misheppnaðist. Birkir einmitt hinn íslenski Marchetti.
11:59
Járnfrúin Vanda Sigurgeirsdóttir tekur sér hlé frá leitinni að næsta landsliðsþjálfara og heilsar upp á fólk.
11:58
Hilmar Björnsson frá RÚV mættur. RÚV má eiga hrós skilið fyrir hvernig bikarnum var sinnt í fyrra. Verður væntanlega ekkert dregið undan þar þetta árið.
11:57Aldrei skal draga á fastandi maga

11:55Fjölmenni frá Selfossi
Selfyssingar eru spenntir fyrir drættinum. Hópferðarbíll í boði Guðmundar Tyrfingssonar hefur séð um að flytja menn þaðan.
11:52
Fólk byrjað í veitungunum en enn hefur enginn þorað að skera fyrstu sneiðina af kökunni.
11:47Ómar Ingi borubrattur
Þjálfari HK mættur til að vera viðstaddur dráttinn. Ljómar yfir honum og skyldi engan undra. Sé á svipnum á honum að hann vill fá Breiðablik, á Kópavogsvelli.
11:44Óðinn Svan vill KA
Óðinn Svan fréttamaður á RÚV og Þórsari vonast eftir því að Þór dragist gegn KA. Það myndi jú vissulega hressa.
11:43Hver tekur fyrstu sneiðina?

11:40Allt að verða klárt!
Veitingaborðið svignar... bíðið aðeins, ætla að smella mynd af því.
06:00Tvö Lengjudeildarlið úr leik


Tvö lið úr Lengjudeildinni féllu úr leik í 2. umferð Mjólkurbikarsins, bæði gegn öðrum Lengjudeildarliðum. Afturelding tapaði gegn Grindavík og Vestri beið lægri hlut gegn Gróttu.
06:00Bikarinn hefur verið í Víkinni síðan 2019


Víkingar eru sannkallaðir bikarmeistarar. Þeir unnu þessa keppni 2019, 2021 og svo 2022. Ríkjandi meistarar frá 2019 þar sem keppni var stöðvuð 2020 vegna Covid heimsfaraldursins.
06:00Bein textalýsing frá drætti dagsins


Góðan og gleðilegan daginn. Dregið verður í 32-liða úrslit Mjólkurbikarsins í höfuðstöðvum KSÍ klukkan 12:00.

Aðeins einn leikur er eftir af annarri umferð bikarsins en Kría (5. deild) og Fjölnir (Lengudeild) mætast í frestuðum leik klukkan 19:30 í kvöld.

Öll tólf liðin úr Bestu deildinni mæta til leiks í 32-liða úrslitum og verður fróðlegt að sjá hvaða lið mætast.

Þessi lið eru í pottinum á þriðjudag

Besta-deildin
Breiðablik
FH
Fram
Fylkir
HK
ÍBV
KA
Keflavík
KR
Stjarnan
Valur
Víkingur R.

Lengjudeildin:
*Fjölnir (Ef liðið vinnur Kríu)
ÍA
Grindavík
Grótta
Leiknir
Njarðvík
Selfoss
Þór
Þróttur
Ægir

2. deild:
Dalvík/Reynir
KFA
KFG
Sindri
Þróttur V.

3. deild:
Kári
Magni

4. deild:
KH
Uppsveitir

5. deild:
RB
*Kría (Ef liðið vinnur Fjölni)
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.