11.05.12 - 11:00
Magnús Már Einarsson
Höttur fær markvörð frá Millwall (Staðfest)

Mynd: Grétar Reynisson

Mynd: Grétar Reynisson
Höttur hefur fengið liðsstyrk fyrir komandi átök í fyrstu deildinni en félagið hefur fengið markvörðinn Ryan Allsop til liðs við sig.
Allsop, verður tvítugur í næsta mánuði, en hann kemur til Hattar frá enska félaginu Millwall.

Allsop var í U17 ára landsliði Englendinga á sínum tíma en hann lék með unglingaliðum West Bromwich Albion áður en hann gekk í raðir Millwall síðastliðið sumar.
Höttur hefur verið að leita að nýjum markverði í vetur og sú leit hefur nú borið árangur. Í fyrra varði Ásgeir Þór Magnússon mark liðsins af stakri prýði en hann gekk síðan aftur í raðir Vals í vetur eftir að hafa verið á láni fyrir austan í fyrra.
Höttur mætir Þrótti í fyrstu umferð fyrstu deildarinnar á morgun og Allsop gæti leikið sinn fyrsta leik þar.