Fotbolti.net
11.05.12 - 10:03
Elvar Geir Magnússon

Solbakken tekur við Úlfunum (Staðfest)

Solbakken tekur við Úlfunum (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Wolves hefur ráðið Norðmanninn Stale Solbakken sem nýjan knattspyrnustjóra. Úlfarnir eru fallnir niður í Championship-deildina.

Solbakken var rekinn frá Köln í síðasta mánuði en hann lék með Wimbledon á Englandi tímabilið 1997-98.
„Ég er í skýjunum með að taka við þessari stóru áskorun að stýra Wolves,\" sagði Solbakken.

Hann verður formlega kynntur fyrir fjölmiðlum á mánudag og tekur svo formlega til starfa 1. júlí. Terry Connor stýrir liðinu í síðasta sinn á sunnudag þegr liðið mætir Wigan í lokaumferð úrvalsdeildarinnar.

Sem leikmaður lék Solbakken 58 leiki fyrir norska landsliðið, þar á meðal á HM 1998 og EM 2000.

Stale Solbakken
Fæddur 27. febrúar 1968
Leikmannaafrek: Danskur meistari 2001.
Afrek sem knattspyrnustjóri: Danskur meistari 2006, 2007, 2009, 2010, 2011. Royal League sigurvegari 2006.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.