11.05.12 - 13:58
Hafliði Breiðfjörð
Brynjar Benediktsson í Leikni (Staðfest)

Brynjar fagnar marki með Leikni.

Mynd: Brandur - Leiknir.com

Brynjar fagnar marki með Leikni.

Mynd: Brandur - Leiknir.com
Framherjinn Brynjar Benediktsson er genginn í raðir Leiknis að nýju frá uppeldisfélagi sínu, FH.
Brynjar sem er 22 ára gamall er að koma til landsins að nýju eftir að hafa verið í námi í Bandaríkjunum í vetur.
Hann hafði hafið meistaraflokksferil sinn með FH sumarið 2009 þegar hann spilaði sex leiki með liðinu í deild og bikar.
Hann var svo lánaður til Leiknis sumarið 2010 og skoraði þá fimm mörk í 21 leik fyrir félagið.
Á síðasta ári var hann lánaður til ÍR frá FH og spilaði 16 leiki og skoraði fjögur mörk.
Hann gengur nú aftur í raðir Leiknismanna en félagið hefur verið að leita sér að sóknarmanni.
Brynjar á að baki 10 leiki fyrir U17 ára landslið Íslands.