Everton vill fá Stones aftur - Amad ekki á förum frá Man Utd - Cambiaso orðaður við ensk félög
   mán 11. maí 2026 10:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Krossbandið slitnaði í Árbænum
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Imran Mehanovic, leikmaður Vestra, sleit krossband í leik liðsins gegn Fylki fyrir viku síðan.

Meiðslin litu illa út en fyrsta skoðun fyllti Vestramenn bjartsýni að mögulega væru meiðslin ekki jafn slæm og þau litu út fyrir að vera.

En eftir nánari skoðun kom í ljós að krossband í hnér slitið og danski miðjumaðurinn spilar ekki meira á tímabilinu.

Imran ólst upp hjá Esbjerg en hefur einnig leikið með Kolding, Horsens, Skive og Hellerup.

Hann er 22 ára og kom til Vestra frá danska félaginu Brönshöj í vetur.

Vestri er með fjögur stig eftir fyrstu þrjár umferðirnr í Lengjudeildinni.
Slapp
banner
banner
banner