Fotbolti.net
11.06.04 - 13:32
Magnús Már Einarsson

Carriere til Lens (Staðfest)

Carriere til Lens (Staðfest)
Canon
RC Lens hefur keypt Eric Carriére miðjumann Lyon á um tvær milljónir punda. Hinn 31 árs Carriére hefur skrifað undir þriggja ára samning við Lens en hann hefur verið ótrúlega sigursæll í frönsku deildinni. Hann sigraði hana með Nantes tímabilið 2000/2001 og hefur svo sigrað hana þrisvar með Lyon seinustu ár.
Carriére á tíu landsleiki að baki en hann átti ekki fast sæti í byrjunarliði Lyon á nýliðnu tímabili. Því ákvað hann að fara til Lens og þar með ætti liðið að sigra frönsku deildina ef að deildarmeistartitilinn heldur áfram að fylgja Carriére.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.