Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
banner
   þri 11. júní 2019 05:55
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
HM kvenna í dag - Heimsmeistararnir og Svíþjóð mæta til leiks
Tobin Heath hefur skorað í fimm af síðustu sex landsleikjum.
Tobin Heath hefur skorað í fimm af síðustu sex landsleikjum.
Mynd: Getty Images
Þrír leikir fara fram í dag á HM kvenna í Frakklandi.

Klukkan 13:00 mætast Nýja Sjáland og Holland í fyrsta leik dagsins. Holland er talið líklegra til afreka í leiknum en Nýja Sjáland vann þrjá af síðustu fimm æfingaleikjum sínum fyrir mótið þar sem talið var að Nýja Sjáland var ólíklegra til sigurs í þeim leikjum.

Kanada er á toppi E-riðilsins eftir sigur gegn Kamerún.

F-riðill hefst á morgun með tveimur leikjum. Klukkan 16:00 mæta Svíar liði Síle. Síle spilar í dag sinn fyrsta leik á HM á meðan gulbláar sænskar hafa öllu meiri reynslu.

Klukkan 19:00 fer fram lokaleikur dagsins þegar Bandaríkin mæta til leiks. Tæland er andstæðingur kvöldsins. Engu öðru en stórtapi Tælands er spáð fyrir leik dagsins. Heimsmeistararnir frá Bandaríkjunum gætu líklegast ekki beðið um auðveldara verkefni í fyrsta leik.

HM kvenna - Þriðjudagur 11. júní
Riðill F
16:00 Síle - Svíþjóð
19:00 Bandaríkin - Tæland

Riðill E
13:00 Nýja Sjáland - Holland
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner