Arsenal á höttunum eftir Williams - Liverpool og Manchester-liðin hafa líka áhuga - Juventus í viðræðum við Aston Villa
   fim 11. júní 2026 16:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Gunni Birgis spáir í opnunarleikinn á HM
Gunnar Birgisson.
Gunnar Birgisson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrsti leikurinn á HM fer fram í kvöld þegar gestgjafarnir frá Mexíkó taka á móti Suður-Afríku. Þetta er sami opnunarleikur og 2010 þegar Suður-Afríka hélt mótið en þá varð niðurstaðan 1-1 jafntefli.

Við fengum Gunnar Birgisson til að spá í spilin fyrir kvöldið. Gunni verður í stóru hlutverki við að lýsa leikjum á mótinu fyrir RÚV.

Mexíkó 1 - 1 Suður-Afríka (19:00 í kvöld)
Gestgjafarnir tapa ekki fyrsta leik á heimavelli með 80 þúsund manns í stúkunni. Hvorki í þessu né næsta lífi.

Ég sé fyrir mér mark frá Raúl Jimenez á 8. mínútu og svo ætla menn að fara verja stöðuna og fá það í bakið með sjálfsmarki á 85. mínútu í klafsi eftir horn.

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
banner
banner