Newcastle United er í viðræðum við Osasuna um kaup á spænska kantmanninum Victor Munoz.
Félagið er í leit að leikmanni í stað Anthony Gordon sem seldur var til Barcelona fyrir um 70 milljónir punda og Munoz er efstur á óskalistanum.
Þessi kviki sóknarleikmaður er með 34,5 milljóna punda riftunarákvæði.

Eddie Howe og félagar vilja ganga frá leikmannamálum sínum sem fyrst til að eyða ekki of miklum tíma á leikmannamarkaðnum.
Munoz, sem er 22 ára, var áður á mála hjá Real Madrid og Barcelona. Hann er með spænska landsliðshópnum á HM en liðið mætir Grænhöfðaeyjum í fyrsta leik sínum þann 15. júní.