Fotbolti.net
28.07.26 - 11:54
Elvar Geir Magnússon

Pedro kom af bekknum og setti þrennu á níu mínútum í 6-4 sigri Chelsea

Pedro átti magnaða innkomu.

Pedro átti magnaða innkomu.

Canon

Mynd: EPA

Xabi Alonso stýrði Chelsea í fyrsta sinn þegar liðið vann 6-4 sigur á ástralska liðinu Western Sydney Wanderers í æfingaleik.

Margir ungir leikmenn fengu tækifæri til að láta ljós sitt skína í leiknum en það var Joao Pedro sem hirti allar fyrirsagnirnar. Brassinn kom inn af bekknum og skoraði þrennu á níu mínútna kafla, breytti stöðunni úr 3-4 yfir í 6-4 fyrir Chelsea.

Athygli vakti að Pedro var ekki valinn í HM hóp Brasilíu og hann mætir greinilega ferskur til leiks eftir gott sumarfrí.
Af hverju er Chelsea skyndilega að kaupa gamla leikmenn?
TENGT EFNI

Af hverju er Chelsea skyndilega að kaupa gamla leikmenn?

Draumabyrjun ungstirnisins frá Kasakstan
Meðal annarra markaskorara Chelsea var hinn 17 ára gamli Dastan Satpaev frá Kasakstan. Hann skoraði fyrsta mark leiksins eftir sex mínútna leik, í sínum fyrsta leik fyrir Chelsea. Draumabyrjun.

Satpaev var keyptur frá Kairat Almaty í febrúar en verður ekki formlega leikmaður Chelsea fyrr en í næsta mánuði, þegar hann verður 18 ára. Chelsea fékk hinsvegar sérstakt leyfi til að taka hann með í æfingaferðina. Hann er mikið efni og er þegar kominn með átta leiki og eitt mark fyrir landslið Kasakstans.

Þeir Dário Essugo og Jamie Gittens skoruðu einnig sitthvort markið fyrir Chelsea í þessum leik í dag sem fram fór í Sydney í Ástralíu.

Chelsea 6-4 Sydney. Gangur leiksins:
1-0 Satpaev '6
1-1 Pantazopoulos '14
1-2 Hammond '32
2-2 Essugo '38
2-3 Scicluna '62
3-3 Gittens '66
3-4 Lual '78
4-4 Pedro '80
5-4 Pedro '85
6-4 Pedro '89

Hinn 17 ára gamli Reggie Walsh átti stoðsendingu í leiknum.

Hinn 17 ára gamli Reggie Walsh átti stoðsendingu í leiknum.

Canon

Mynd: EPA

 Landon Emenalo svekktur út í sjálfan sig eftir að hann klúðraði færi.

Landon Emenalo svekktur út í sjálfan sig eftir að hann klúðraði færi.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.