Arsenal á höttunum eftir Williams - Liverpool og Manchester-liðin hafa líka áhuga - Juventus í viðræðum við Aston Villa
   fim 11. júní 2026 14:09
Kári Snorrason
Sómalíski dómarinn dæmir úrslitaleik Ofurbikarsins - Ceferin gagnrýnir FIFA
Omar Artan.
Omar Artan.
Mynd: Instagram/Omar_Artan
Sómalíski dómarinn Omar Artan, sem átti að dæma á HM en var meinað um inngöngu í Bandaríkin, mun dæma úrslitaleik evrópska Ofurbikarsins.

UEFA tilkynnti um tíðindin fyrir skömmu en PSG og Aston villa mætast í úrslitaleiknum og fer hann fram 12. ágúst í Salzburg.

Aleksander Ceferin, forseti UEFA, segir Artan hafa sannað sig á stærsta sviði í Afríku og vill sýna honum þá virðingu sem hann á skilið.

„Fótbolti snýst um að sameina fólk og UEFA vill sýna Omar virðingu,“ var m.a. haft eftir Ceferin í tilkynningu UEFA.

Artan var fagnað sem hetju í Sómalíu þegar hann sneri heim á miðvikudag eftir að hafa verið sendur úr Bandaríkjunum.
Slapp
banner