Heimsmeistaramótið hefur leik í kvöld þegar Mexíkó tekur á móti Suður-Afríku.
Um er að ræða sama opnunarleik og á HM 2010 þegar Suður-Afríka hýsti mótið, þar sem leikar enduðu 1-1.
Eins og þekkist hefja gestgjafarnir leik en nú er mótið haldið í þremur mismunandi löndum; Mexíkó, Kanada og Bandaríkjunum. Það voru Mexíkóar sem hrepptu hnossið og fá að hefja leik í ár.

Ef litið er til sögunnar þá eru gestgjafarnir mun líklegri til að bera sigur úr býtum í opnunarleiknum.
Af 22 heimsmeistaramótum hafa gestgjafarnir unnið 16 þeirra, fimm sinnum hefur farið jafntefli og aðeins einu sinni hefur þjóðin sem heldur mótið tapað.
Það gerðist á síðasta heimsmeistaramóti sem haldið var í Katar þar sem þeir mættu þeir Ekvador. Hinn geðþekki Enner Valencia reyndist þar Katverjum óþægur ljár í þúfu og skoraði hann bæði mörk Ekvadors í 2-0 sigri.
Leikur kvöldsins hefst klukkan 19:00, næsti leikur fer fram klukkan tvö í nótt þegar Suður-Kórea mætir Tékklandi.

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!