11.07.04 - 11:20
Magnús Már Einarsson
Song til Galatasaray (Staðfest)

Song hress, kominn með Galatasaray húfu.


Song hress, kominn með Galatasaray húfu.

Tyrkneska liðið Galatasaray hefur keypt kamerúnska varnarmanninn Rigobert Song frá franska liðinu Lens á 1 milljón punda. Song sem að er 28 ára hóf atvinnumannaferil sinn ungur eða árið 1994 með Metz en síðan þá hefur kappinn leikið með Salernitana,Liverpool, West Ham, Köln og svo síðast Lens. Song hefur skrifað undir tveggja ára samning við Galatasaray með möguleika á framlengingu um eitt ár. Þrátt fyrir að vera aðeins 28 ára þá hefur Song leikið á þremur síðustu heimsmeistaramótum með Kamerún og á alls 107 landsleiki að baki en nú er hann fyrirliðið landsliðsins.
Kaupin á Song undirstrika það að Galatasaray ætlar að bæta upp fyrir vonbrigðin á nýliðnu tímabili en auk þess að kaupa Song þá fékk liðið brasilíska miðjumanninn Flavio Conceicao fyrir skömmu.
