Fotbolti.net
11.07.20 - 13:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Norwich fallið oftar en nokkurt annað lið

Pukki-partýið var ekki langlíft.

Pukki-partýið var ekki langlíft.

Canon

Mynd: Getty Images

Norwich er fallið úr ensku úrvalsdeildinni eftir <a href="https://fotbolti.net/news/11-07-2020/england-antonio-felldi-norwich-med-fernu" target="_blank">tap gegn West Ham</a> á heimavelli, 0-4.

Michail Antonio skoraði öll fjögur mörk West Ham í leiknum.
Norwich komst upp í ensku úrvalsdeildina fyrir þessa leiktíð en stoppar ekki lengi í deild þeirra bestu á Englandi.

Norwich hefur mikið verið að flakka á milli deilda en liðið setti nýtt met í dag. Frá stofnun ensku úrvalsdeildarinnar árið 1992 hefur ekkert lið fallið oftar en Norwich eða fimm sinnum.

Kanarífuglarnir hafa aðeins unnið fimm deildarleiki á tímabilinu og eru með 21 stig eftir 34 leiki. Liðið hefur tapað öllum sínum leikjum eftir að deildin hófst aftur eftir Covid-pásuna.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.