11.08.04 - 16:08
Magnús Már Einarsson
Ambrosio til Grasshoppers (Staðfest)




Ítalinn, Marco Ambrosio markvörður Chelsea hefur verið lánaður til svissneska liðsins Zurich Grasshoppers til 30.desember. Hinn 31 árs gamli Ambrosio er ætlað að fylla skarð Peter Jehle hjá Grasshoppers en hann verður frá næstu sex vikurnar vegna meiðsla. Ambrosio kom við sögu undir lok síðasta keppnistímabils hjá Chelsea þegar að Carlo Cudicini var meiddur en eftir komu Petr Cech í sumar er hann orðinn þriðji í markvarðarröðinni á Stamford Bridge.
