Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 11. ágúst 2020 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Arion bankamótinu aflýst sökum aðstæðna í þjóðfélaginu
Arion bankamótið fer ekki fram þetta árið
Arion bankamótið fer ekki fram þetta árið
Mynd: UMFÍ
Knattspyrnudeild Víkings R. hefur ákveðið að aflýsta Arion banka mótinu sem átti að fara fram helgina 15. og 16. ágúst næstkomandi vegna aðstæðna í þjóðfélaginu.

Arion bankamótið átti að fara fram á svæði Víkings en tæplega 2500 þátttakendur voru skráðir til leiks úr 7. og 8. flokki.

Aðstæður í þjóðfélaginu bjóða ekki upp á jafn fjölmennan viðburð og þennan og því hefur verið ákveðið að aflýsa mótinu.

Víkingur R. hvetur alla iðkendur sem skráðu sig til leiks til að halda áfram að æfa sig við öruggar aðstæður.

Athugasemdir
banner
banner
banner