Kylian Mbappe, framherji Paris Saint-Germain, er búinn að jafna sig af meiðslum og verður með liðinu gegn Atalanta í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar á morgun.
Mbappe meiddist á ökkla gegn Lyon á dögunum er spilað var um Ofurbikarinn í Frakklandi.
Það var óvíst hvort hann myndi ná leiknum gegn Atalanta á morgun en Thomas Tuchel hefur staðfest að Mbappe verður með.
Mbappe byrjar að öllum líkindum á tréverkinu en Tuchel vonast til að gefa honum mínútur gegn Atalanta.
„Ef hann æfir vel í dag og það gerist ekkert svakalegt þá mun hann spila á morgun," sagði Tuchel.
„Við erum ánægðir að hann er hérna með hópnum og við getum átt þann möguleika að nota hann í leiknum," sagði hann í lokin.
Athugasemdir