11.09.03 - 00:00
Magnús Már Einarsson
Alexandersson til West Ham. (Staðfest)

Niclas Alexandersson í búningi Everton.


Niclas Alexandersson í búningi Everton.

Sænski miðjumaðurinn Niclas Alexandersson er kominn til West Ham á lánssamnigi frá Everton. Alexandersson sem er 31 árs mun vera í einn mánuð á Upton Park til að byrja með en hann flaug nú í kvöld og gekk frá samningunum og hittir verðandi liðsfélaga sína á morgun. West Ham hefur líklega þegar hafist handa við að merkja aftan á treyjuna sem Alexandersson mun fá en mjög erfitt er að koma öllum stöfunum fyrir á bakinu.
