Fotbolti.net
11.11.04 - 18:09
Magnús Már Einarsson

Elmar Dan í Víking R. (Staðfest)

Elmar Dan í Víking R. (Staðfest)
Canon

Mynd: www.ka-sport.is

Sóknarmaðurinn Elmar Dan Sigþórsson er genginn til liðs við Víking R. en hann kemur til liðsins frá KA. Elmar Dan sem að er 22 ára gamall gerir tveggja ára samning við Víking. Á heimasíðu KA kemur fram að Elmar átti eitt ár eftir af samningi sínum við Akureyrarliðið en KA leyfði honum að fara vegna persónulegra ástæðna.
Elmar lék fjórtán leiki með KA í efstu deild í sumar og skoraði eitt mark í þeim en það kom gegn Fylki sextándu umferð. Þegar að hann skoraði markið meiddist Elmar og lék hann ekkert meira með KA það sem að eftir var af sumrinu.

Sjá einnig:
Hin Hliðin á Elmari (September 2004)
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.