Fotbolti.net
11.11.19 - 14:00
Magnús Már Einarsson

Lanzini viðbeinsbrotnaði - Líklega ekki meira með á árinu

Lanzini viðbeinsbrotnaði - Líklega ekki meira með á árinu
Canon

Mynd: Getty Images

Manuel Lanzini, miðjumaður West Ham, fer í aðgerð í dag eftir að hafa viðbeinsbrotnað gegn Burnley um helgina.

Argentínumaðurinn meiddist eftir samstuð við Ashley Westwood og var borinn af velli.
Ljóst er að Lanzini verður ekki með West Ham næstu vikurnar og ólíklegt er að hann komi nokkuð við sögu fyrir áramót.

Mark Noble, fyrirliði West Ham, meiddist einnig á ökkla í leiknum um helgina en óvíst er hversu alvarleg þau meiðsli eru.

West Ham tapaði leiknum 3-0 og hrapaði við það niður í 16. sæti í úrvalsdeildinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.