Fotbolti.net
11.11.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Ítalska deildin

Aquilani rekinn frá Sassuolo (Staðfest) - D'Aversa tekur við keflinu

Aquilani rekinn frá Sassuolo (Staðfest) - D'Aversa tekur við keflinu
Canon

Mynd: Sassuolo

Ítalska félagið Sassuolo hefur rekið Alberto Aquilani eftir slaka byrjun á tímabilinu og ráðið Roberto D'Aversa í hans stað.
Aquilani, sem lék með Liverpool, Juventus og Roma á sínum tíma, tók við Sassuolo í sumar eftir að hafa náð góðum árangri með Catanzaro.

Honum tókst hins vegar ekki að fylgja þeim árangri eftir hjá Sassuolo, sem vann aðeins tvo af fyrstu ellefu deildarleikjum sínum undir hans stjórn og situr í 17. sæti deildarinnar.

Stjórnarmenn Sassuolo töldu því tímabært að gera breytingar og var Aquilani látinn taka pokann sinn.

D'Aversa hefur nú tekið við liðinu, en hann var síðast við stjórnvölinn hjá Torino og hefur einnig þjálfað Empoli, Lecce, Sampdoria og Parma.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.