11.11.26 - 08:00
Brynjar Ingi Erluson
„Hann er kominn lengra en Ronaldo og líklega Messi líka“

Lamine Yamal

Mynd: EPA

Stevie G er mikill aðdándi Yamal

Mynd: EPA

Lamine Yamal

Mynd: EPA

Enska goðsögnin Steven Gerrard telur Lamine Yamal vera lengra kominn á sínum ferli en Cristiano Ronaldo og Lionel Messi voru á sama aldri.
Gerrard fór fögrum orðum um hinn 19 ára gamla Yamal í Overlap-þættinum og segist aldrei hafa séð jafn hæfileikaríkan leikmann á þessum aldri.
„Hann er kominn lengra en Ronaldo var þegar hann var 19 ára. Ég spilaði gegn Messi þegar hann var ungur og líklega er hann kominn lengra en Messi var á sama aldri,“ sagði Gerrard.
Gerrard hafði einnig hrósað Yamal fyrir leik Barcelona gegn Aston Villa í Meistaradeildinni í síðustu viku og er greinilega mikill aðdáandi hans. Það er heldur ekki amalegt fyrir Yamal að fá slíkt hrós frá Gerrard, sem er talinn einn besti miðjumaður sinnar kynslóðar.
„Við erum að tala um algjöra stórstjörnu. Hann er hreint undrabarn og tölurnar sem hann er að skila í mörkum og stoðsendingum eru ótrúlegar, eiginlega ógnvekjandi.“
Gerrard telur jafnframt að Yamal ætti ekki einu sinni að íhuga að yfirgefa Barcelona, enda erfitt að sjá hvað annað félag gæti boðið honum umfram það sem hann hefur nú þegar.
„Barcelona berst um La Liga og Meistaradeildina á hverju einasta tímabili. Þú spilar fyrir framan 100 þúsund manns í hverri viku og ert byrjunarliðsmaður í landsliðinu. Af hverju í ósköpunum myndirðu vilja fara eitthvað annað?“ sagði og spurði Gerrard.