12.01.04 - 00:00
Magnús Már Einarsson
Helgi Sigurðsson til AGF (Staðfest)

Helgi alsæll í búningi AGF.


Helgi alsæll í búningi AGF.

Landsliðsmaðurinn Helgi Sigurðsson gekk í dag til liðs við danska liði AGF. Eins og við greindum frá á laugardag voru samningaviðræður í gangi en í dag skrifaði Helgi undir samning við AGF sem gildir til sumarsins 2006. Helgi sem er 29 ára sóknarmaður hefur verið án félags síðan að hann yfirgaf Lyn í haust. Hann fór til reynslu hjá enska 1.deildarliðinu Gillingham og var boðinn stuttur samningur en ákvað að hafna honum.
Eins og einhverjir vita þá er Ólafur H. Kristjánsson fyrrum leikmaður KR og FH aðstoðarþjálfari hjá AGF svo að Helgi verður annar Íslendingurinn í herbúðum liðsins.
