12.01.10 - 08:38
Magnús Már Einarsson
Michel til Birmingham (Staðfest)

Michel í æfingaleik gegn Birmingham síðastliðið sumar.

Mynd: Getty Images

Birmingham hefur keypt miðjumanninn Michel frá Sporting Gijon á þrjár milljónir punda.
Þessi 24 ára gamli leikmaður hefur verið í lykilhlutverki hjá Sporting Gijon síðan hann braust inn í liðið tímabilið 2006/2007.
,,Hann er á frábærum aldri og er góður á boltanum eins og búast má við af spænskum leikmanni í La Liga,\" sagði Alex McLeish stjóri Birmingham.
Michel er fyrsti leikmaðurinn sem Birmingham fær í þessum mánuði en búast má við að fleiri bætist í hópinn þar sem að McLeish mun fá 20-40 millljónir punda til leikmannakaupa.
McLeish hefur mistekist að fá Aiden McGeady frá Celitc og Ryan Babel frá Liverpool en talið er að hann sé einnig að fylgjast með Kenwyne Jones framherja Sunderland.

Heimild: BBC