12.01.10 - 12:21
Magnús Már Einarsson
Andy Griffin til Reading á láni (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Íslendingalið Reading hefur fengið varnarmanninn Andy Griffin á láni frá Stoke út þessa leiktíð.
Þessi þrítugi leikmaður lék stórt hlutverk hjá Stoke þegar að liðið komst upp í ensku úrvalsdeildina árið 2008 en síðan þá hefur hann ekki átt fast sæti í liðinu.
Griffin kemur væntanlega til með að spila í stöðu hægri bakvarðar hjá Reading en Brynjar Björn Gunnarsson hefur verið í þeirri stöðu undanfarið.
Griffin getur ekki leikið með Reading gegn Liverpool í enska bikarnum annað kvöld en hann gæti leikið sinn fyrsta leik með liðinu gegn Nottingham Forest á laugardag.

Heimild: Sky