12.01.10 - 17:05
Magnús Már Einarsson
Steven Gohouri til Wigan (Staðfest)

Steve Gohouri lætur Hugo Almeida finna fyrir því.

Mynd: Getty Images

Steven Gohouri, varnarmaður frá Fílabeinsströndinni, hefur gert samning við Wigan út þetta tímabil.
Gohouri lék síðast með Borussia Moenchengladbach í Þýskalandi en hann fór þaðan í desember.
Þessi 28 ára gamli leikmaður heillaði síðan Roberto Martinez stjóra Wigan þegar að hann var á reynslu hjá félaginu á dögunum.
Martinez vonast til að Gohouri nái að binda vörn Wigan betur saman en varnarleikur liðsins hefur ekki verið sannfærandi oft á tíðum í vetur.
,,Steven hefur frábært hugarfar og hann var æstur í að spila fyrir Wigan Athletic,\" sagði Martinez.

Heimild: Sky