Fotbolti.net
12.01.26 - 17:18
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Alonso hættur hjá Real Madrid (Staðfest)

Alonso hættur hjá Real Madrid (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Xabi Alonson er hættur sem aðalþjálfari Real Madrid. Spænska félagið segir frá þessum tíðindum í yfirlýsingu rétt í þessu. Þar kemur fram að um sameiginlega ákvörðun sé að ræða.

Alonso kom til Real í sumar eftir að hafa gert frábæra hluti með Bayer Leverkusen i Þýskalandi sem var hans fyrsta stóra aðalþjálfarastarf.

„Alonso verður alltaf í miklum metum hjá stuðningsmönnum Real Madrid því hann er goðsögn hjá félaginu. Real Madrid verður alltaf hans heimili. Félagið þakkar Xabi Alonso og öllu hans teymi fyrir þeirra vinnu og óskar þeim alls hins besta í næsta kafla lífsins," segir m.a. í yfirlýsingunni.
Alonso hefur verið valtur í sessi hjá Real þrátt fyrir að vera með liðið í 2. sæti deildarinnar. Liðið hefur ekki þótt spila nægilega vel og þá lenti hann upo á kant við stórstjörnuna Vinicius Jr. fyrr á þessu tímabili.

Real er þremur stigum á eftir Barcelona í La Liga en tapaði gegn erkifjendunum í úrslitaleik Ofurbikarsins í gær.

Nóvember var erfiður hjá Alonso og vann Real einungis tvo leiki í mánuðinum, tapaði reyndar einungis einum leik en liðið gerði jafntefli við Rayo Vallecano, Elche og Girona sem er óásættanlegt. Í desember tapaði liðið svo fyrir Celta Vigo.

Alonso lék með Real Madrid á árunum 2009-14 og vann bæði deildina og Meistaradeildina sem leikmaður liðsins.

La Liga - karlar

#LiðLmunStig
1Barcelona9+3027
2Atletico Madrid10+1225
3Real Madrid9+1421
4Betis9+219
5Real Sociedad9016
6Sevilla9-214
7Alaves10+312
8Villarreal10+112
9Celta9+311
10Deportivo10011
11Osasuna9-811
12Racing Santander10-1111
13Levante9-210
14Elche10-310
15Athletic8-19
16Getafe9-69
17Vallecano9-89
18Espanyol10-28
19Valencia10-106
20Malaga10-125
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.