Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 12. febrúar 2019 16:30
Magnús Már Einarsson
Martial: Auðveldara að spila fyrir Solskjær
Martial fagnar marki.
Martial fagnar marki.
Mynd: Getty Images
Anthony Martial segir að það sé auðveldara að spila undir stjórn Ole Gunnar Solskjær heldur en undir stjórn Jose Mourinho. Martial hefur verið öflugur undanfarnar vikur eftir að Solskjær tók við af Mourinho.

„Við erum með þjálfara sem er með öðruvísi áætlanir og við erum að reyna að gera það sem hann vill. Kannski er auðveldara að spila hans leikstíl heldur en fótboltann sem hann (Mourinho) vildi sjá," sagði Martial.

„Þegar nýi þjálfarinn kom þá kom hann með mikið sjálfstraust og mikinn vilja og það hjálpaði okkur mikið. Við erum að reyna að borga honum til baka og það gengur vel í augnablikinu."

„Hann er búinn að biðja mig um að sækja meira. Það er mitt starf, að gera gæfumuninn. Hlutirnir eru að ganga vel hjá öðrum sóknarmönnum líka og ég vona að við getum staðið okkur áfram vel."

Athugasemdir
banner
banner
banner