Fotbolti.net
12.03.23 - 14:40
Brynjar Ingi Erluson

Casemiro sendur í sturtu eftir ljótt brot á Alcaraz

Casemiro labbar a velli

Casemiro labbar a velli

Canon

Mynd: Getty Images

Brasilíski miðjumaðurinn Casemiro er farinn snemma í sturtu eftir að hann var rekinn af velli í leik Manchester United gegn Southampton á Old Trafford.
Casemiro hefur komið með ferska vinda inn í lið United á þessari leiktíð og er einn af allra mikilvægustu leikmönnum liðsins, en það þarf að klára leikinn án hans.

Hann fékk að líta rauða spjaldið á 32. mínútu er hann fór í ljóta tæklingu á Carlos Alcaraz. Anthony Taylor, dómari leiksins, gaf Casemiro gula spjaldið, en eftir að hafa skoðað atvikið betur breytti hann því í rautt spjald.

Hægt er að sjá þetta atvik hér fyrir neðan. Staðan í leiknum er markalaus.

Sjáðu tæklinguna hjá Casemiro
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.