Enska úrvalsdeildarfélagið Chelsea hefur gengið frá kaupum á hinum 17 ára gamla Dujuan Richards frá Phoenix All-Stars akademíunni í Jamaíku. Þetta kemur fram í tilkynningu frá All-Stars.
Richards, sem er talinn efnilegasti leikmaður Jamaíku, skoraði 31 mark og lagði upp 19 á síðasta tímabili með Phoenix All-Stars.
Hann fór á reynslu hjá Newcastle fyrr á árinu og var í stúkunni er liðið gerði 1-1 jafntefli við Chelsea í síðasta mánuði.
Newcastle gerði honum tilboð en ákvað frekar að taka tilboði Chelsea en þetta staðfestir Phoenix All-Stars. Hann gengur til liðs við félagið í sumar.
Heimir Hallgrímsson, þjálfari Jamaíku, valdi Richards í landsliðshópinn fyrir vináttulandsleikina í mars.
Athugasemdir