Heimild: Dr. Football
Danijel Dejan Djuric er að öllum líkindum á leið aftur í Bestu deildina. Hann hefur verið sterklega orðaður við bæði Breiðablik og KA, og virðast þau berjast um hans undirskrift.
Danijel er samningsbundinn króatíska félaginu Istra sem vill selja hann og samkvæmt heimildum Fótbolta.net eru bæði Breiðablik og KA með samþykkt tilboð í hann.
Í hlaðvarpsþættinum Dr. Football segir Albert Ingason frá því að Danijel sé á leið í KA og muni skrifa undir þriggja ára samning. Samkvæmt heimildum Fótbolta.net eru Blikar þó ekki búnir að gefa upp alla von.

Albert segir að kaupverðið sé 18 milljónir króna sem er sama upphæð og Fótbolti.net hefur heyrt.
„Danijel er að fara í KA, hann fer norður, þriggja ára samningur, ekki lán - heldur kaup," sagði Albert í þættinum.
„Ég var að tala við nokkra aðila tengda Breiðabliki sem höfðu trú á því að hann væri að koma til þeirra," sagði þáttarstjórnandinn Hjörvar Hafliðason í þættinum.
Albert segir að Danijel fái helmingi hærri laun hjá KA. „Hann var tilbúinn að vera á lægri launum hjá Blikum, en hann vildi sjá aðeins hversu mikið þeir vildu fá hann. Hann vildi fá tíuna (treyju númer 10), og þá þurfti Kiddi Steindórs að gefa frá sér númerið sitt. Að lokum fann hann fyrir meiri áhuga fyrir norðan," sagði Albert í þættinum sem birtur var í hádeginu í dag.
Ef 18 milljónir króna er rétt upphæð verður Danijel, samkvæmt þeim upplýsingum sem Fótbolt.net hefur, næstdýrasti leikmaður í sögu Bestu deildarinnar á eftir Gylfa Þór Sigurðssyni sem Víkingur keypti af Val fyrir rúmu ári síðan.
Danijel var keyptur til Istra af Víkingi fyrir rúmu ári síðan en komst ekki í stórt hlutverk í króatíska liðinu. Hann virtist á leið til Serbíu á láni en pappírum var ekki skilað í tæka tíð og í kjölfarið var hann orðaður við heimkomu til Íslands.
Athugasemdir