12.05.12 - 10:00
Magnús Már Einarsson
Chris Ross og Evan Schwartz í Víking R. (Staðfest)

Evan Schwartz.

Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson

Víkingur R. hefur fengið Chris Ross og Evan Schwartz til liðs við sig fyrir átökin í fyrstu deildinni í sumar.
Ross er Ástrali en hann kemur til Víkings frá Bandaríkjunum þar sem hann hefur leikið undanfarin ár í háskólaboltanum. Ross er örvfættur og getur leikið í vinstri bakverði, á vinstri kanti og á miðjunni en hann lék áður með Chelsea Hadjuk í heimalandinu.
Evan Schwartz er sókndjarfur bakvörður en hann hefur æft með Víkingum undanfarna daga.
Evan þekkir til hjá Íslandi en hann skoraði þrjú mörk í sjö leikjum í annarri deildinni með Aftureldingu sumarið 2008. Árið 2009 var hann síðan á mála hjá Breiðabliki þar sem hann fékk fá tækifæri.
Hann gæti leikið sinn fyrsta leik með Víkingi þegar liðið mætir BÍ/Bolungarvík í fyrstu umferðinni í 1. deildinni í dag.
Chris Ross verður ekki kominn með leikheimild í dag en reiknað er með að hann verði orðinn löglegur þegar Víkingur mætir ÍR um næstu helgi en þetta kemur fram á Vikingur.net.

Heimild: Vikingur.net