12.05.12 - 19:00
Ívan Guðjón Baldursson
Úrvalsdeildarbaráttan útskýrð fyrir lokaumferðina

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Lokaumferð ensku Úrvalsdeildarinnar verður sunnudaginn 13. maí 2012. Allt mun koma í ljós, hvaða lið falla, hvaða lið vinnur deildina og hvaða lið komast í Meistaradeildina.
Manchester City og Manchester United eru í titilbaráttunni, þrjú lið eru að berjast um meistaradeildarsæti og tvö lið eru í fallbaráttu, en annað þeirra mun falla. Hér fyrir neðan er ítarleg útskýring fyrir leiki sunnudagsins.

Meistaradeild á næsta tímabili:
Manchester United (Staðfest)
Manchester City (Staðfest)
Arsenal (með sigri gegn WBA)
Chelsea (með sigri gegn Bayern Munchen)
Tottenham (með von um að Arsenal og/eða Chelsea tapi)
Newcastle (með von um að Arsenal, Chelsea og Tottenham tapi)
Evrópudeild á næsta tímabili:
Liverpool (Staðfest, deildarbikarinn)
Newcastle (Líklega)
Tottenham (Mögulega)
Chelsea (Mögulega)
Arsenal (Ólíklega)
Manchester City:
City er í bestu stöðunni eins og er og getur félagið tryggt sér sinn fyrsta úrvalsdeildartitil með sigri gegn Heiðari Helgusyni og félögum í QPR. City er á toppi deildarinnar með jafn mörg stig og nágrannarnir í Man Utd, en City er átta mörkum yfir United.
City vann síðast efstu deild á Englandi fyrir 44 árum.
Manchester United:
Titillinn hefur runnið úr greipum United manna og þurfa þeir að treysta á að City tapi stigum gegn QPR á sunnudaginn. Alex Ferguson og hans menn þurfa því að sigra Sunderland á sunnudaginn og treysta á að QPR fái allavega eitt stig gegn City.
Chelsea:
Chelsea endar í sjötta sæti deildarinnar og það er staðfest, en liðið er í úrslitaleik Meistaradeildarinnar og veltur framtíð félagsins á þessum eina leik í Munchen gegn heimamönnum Bayern Munchen. Ef Chelsea vinnur úrslitaleikinn gegn Bayern þá mun liðið fá beinan þátttökurétt í Meistaradeildina á næsta tímabili, en fjórða sætið í ensku Úrvalsdeildinni mun þá missa sæti sitt í Meistaradeildinni.
Til einföldunar er hægt að segja að ef Chelsea vinnur Meistaradeildina þá munu þrjú efstu lið Úrvalsdeildarinnar og Chelsea fara beint í riðlakeppni Meistaradeildarinnar en fjórða sæti Úrvalsdeildarinnar fer þá beint í riðlakeppni Evrópudeildarinnar.
Ef Chelsea tapar úrslitaleik Meistaradeildarinnar þá fara fjögur efstu lið Úrvalsdeildarinnar í Meistaradeildina eins og vanalega á meðan Chelsea fer í Evrópudeildina þar sem að félagið vann FA bikarinn.
Arsenal:
Arsene Wenger og lærlingar hans hjá Arsenal eru í kjörstöðu á að enda í þriðja sæti Úrvalsdeildarinnar og tryggja sér þannig þátttöku í riðlakeppni Meistaradeildarinnar. Arsenal heimsækir West Bromwich Albion í lokaleik sínum en tap eða jafntefli gegn West Brom gæti hleypt Tottenham og/eða Newcastle í þriðja sætið.
Arsenal endar í þriðja sæti ef:
a) Arsenal vinnur West Brom
b) Arsenal gerir jafntefli og Tottenham tekst ekki að vinna
c) Arsenal tapar, Tottenham tapar og Newcastle tekst ekki að vinna
d) Arsenal tapar með einu marki, Tottenham tekst ekki að vinna og Newcastle tekst ekki að vinna
Arsenal endar í fjórða sæti ef:
a) Arsenal gerir jafntefli og Tottenham vinnur
b) Arsenal tapar, Tottenham vinnur og Newcastle tekst ekki að vinna
c) Arsenal tapar, Tottenham tapar og Newcastle vinnur
d) Arsenal tapar með einu marki, Tottenham gerir jafntefli og Newcastle vinnur
e) Arsenal tapar með tveimur eða fleiri mörkum, Tottenham gerir jafntefli og Newcastle tekst ekki að vinna
Arsenal endar í fimmta sæti ef:
a) Arsenal tapar á meðan Tottenham og Newcastle vinna sína leiki
b) Arsenal tapar með tveimur mörkum eða meira, Tottenham gerir jafntefli og Newcastle vinnur
Tottenham Hotspur:
Tottenham á heimaleik gegn Fulham og er í fjórða sæti, en fjórða sætið gefur aðeins þátttökurétt í Meistaradeildinni ef Chelsea tapar í úrslitaleiknum gegn Bayern. Til að komast í þriðja sæti verður Tottenham að treysta á að West Brom taki stig af Arsenal, en liðið verður á sama tíma að passa sig á Newcastle sem er aðeins einu stigi eftir Tottenham.
Tottenham endar í þriðja sæti ef:
a) Tottenham vinnur og Arsenal tekst ekki að vinna
b) Tottenham gerir jafntefli, Arsenal tapar með tveimur mörkum eða meira og Newcastle tekst ekki að vinna
Tottenham endar í fjórða sæti ef:
a) Tottenham vinnur og Arsenal vinnur
b) Tottenham gerir jafntefli, Arsenal tapar ekki og Newcastle tekst ekki að vinna
c) Tottenham gerir jafntefli, Arsenal tapar með tveimur mörkum eða meira og Newcastle vinnur
d) Tottenham tapar og Newcastle tekst ekki að vinna
Tottenham endar í fimmta sæti ef:
a) Tottenham gerir jafntefli, Arsenal tapar ekki með tveimur mörkum eða meira og Newcastle vinnur
b) Tottenham tapar og Newcastle vinnur
Newcastle United:
Markatalan hjá Newcastle drepur vonir liðsins svolítið niður en með betri markatölu væru liðinu fleiri vegir færir á þessum lokaleikdegi tímabilsins. Þess vegna er mjög einfalt að útskýra möguleika Newcastle.
Newcastle endar í þriðja sæti ef:
a) Newcastle vinnur, Arsenal tapar og Tottenham tekst ekki að vinna
Newcastle endar í fjórða sæti ef:
a) Newcastle vinnur, Arsenal tapar ekki og Tottenham tekst ekki að vinna
b) Newcastle vinnur, Arsenal tapar og Tottenham vinnur
Newcastle endar í fimmta sæti ef:
a) Newcastle vinnur, Arsenal tapar ekki og Tottenham vinnur
b) Newcastle tekst ekki að vinna
Fallbaráttan:
Þá er ekkert eftir nema fallbaráttan, en þar eru Bolton Wanderers og Queens Park Rangers í harðri fallbaráttu.
Markatalan hjá Bolton gerir það að verkum að QPR nægir að gera jafntefli gegn Man City til að tryggja sæti sitt í Úrvalsdeildinni. Eina leiðin fyrir Bolton til að halda sér í deildinni er að sigra Stoke og vonast eftir tapi hjá QPR.