Fotbolti.net
12.06.12 - 18:22
Ívan Guðjón Baldursson

Nick Powell kominn til Manchester United (Staðfest)

Nick Powell kominn til Manchester United (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Manchester United hefur fengið til sín hinn unga Nick Powell frá Crewe Alexandra, en hann er búinn að skrifa undir fjögurra ára samning.

Nokkur lið voru á eftir Powell, þá helst Arsenal og Everton, en Rauðu djöflarnir eru búnir að tryggja sér þjónustu hans næstu fjögur árin.
,,Við höfum fylgst með Nick sem mánuðunum skiptir,\" sagði Sir Alex Ferguson.

,,Hann hefur frábæra hæfileika og hefur fengið góða þjálfun hjá Crewe. Ég er gríðarlega ánægður með að hann hafi valið að koma til United, hann hefur mikið að bjóða og við getum ekki beðið eftir að vinna með honum.\"

Powell spilar sem sóknarsinnaður miðjumaður og á væntanlega að gegna því hlutverki sem Paul Pogba átti að gegna, en hann er talinn vera á leið til Ítalíumeistara Juventus.

,,Þetta er draumur að rætast að vera að skrifa undir hjá Manchester United,\" sagði Powell.

,,Ég hef notið mín hjá Crewe og vill þakka öllum sem hafa þjálfað mig síðustu þrettán ár. Ég get ekki beðið eftir að byrja að æfa undir Sir Alex og með þeim heimsklassaleikmönnum sem eru í leikmannahópnum þar.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.