FIFA skoðar 64 liða HM - „Það verður rætt eftir mótið“

Gianni Infantino, forseti FIFA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Gianni Infantino, forseti FIFA

Mynd: EPA
Alþjóðafótboltasambandið, FIFA, er alvarlega að íhuga þann möguleika að fjölga liðum úr 48 í 64 fyrir næsta heimsmeistaramót, en það verður rætt eftir mótið sem fer nú fram í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó.
Á síðasta ári var greint frá því að FIFA væri að skoða að fjölga þjóðum á HM enn frekar.
Fyrir þetta mót var liðunum fjölgað úr 32 í 48. Það hefur ekki gengið alveg snuðrulaust fyrir sig og fyrirkomulagið hefur sætt mikilli gagnrýni.
Carlos Queiroz, þjálfari Gana, benti meðal annars á að undankeppnin hefði minni þýðingu með fleiri liðum. Þá kom einnig upp sú sérstaka staða á mótinu að betra var að tapa en vinna þegar Alsír og Austurríki mættust í riðlakeppninni.
Suður-amerískir leiðtogar komu með þá hugmynd á síðasta ári að fjölga liðunum í 64 og gæti vel farið svo að það verði að veruleika.
Gianni Infantino, forseti FIFA, segir að málið verði rætt betur eftir mótið.
„Þetta er mál sem verður skoðað og rætt við viðeigandi nefndir eftir mótið. Allar þjóðir eiga skilið að dreyma um að taka þátt á heimsmeistaramótinu.“
„Þú sérð að gæði liðanna eru gríðarleg og verða meiri og meiri um allan heim. Ef þú gefur ekki smærri þjóðum tækifæri til að komast á HM, þá munu þær missa metnaðinn til að bæta sig,“ sagði Infantino við BlueWin.
Næsta HM verður haldið í sex löndum og þremur heimsálfum. Þrír leikir verða spilaðir í Suður-Ameríku, í Argentínu, Paragvæ og Úrúgvæ, en restin af leikjunum fer fram í Marokkó, Portúgal og Spáni.
Leiðtogar í Suður-Ameríku hafa verið helstu stuðningsmenn hugmyndarinnar, en Aleksandr Ceferin, forseti UEFA, segir þetta mjög slæma þróun. Victor Montagliani, forseti CONCACAF, er sammála Ceferin og segir hugmyndina alls ekki góða.
Ceferin telur að 64 liða HM myndi skemma bæði mótið sjálft og undankeppnina. Eitt er þó víst: Þetta myndi auðvelda Íslandi að komast aftur á HM. Það þýðir samt ekki endilega að hugmyndin sé góð.