Fotbolti.net
11.07.26 - 17:59
Jóhann Þór Hólmgrímsson

2. deild: Selfoss og Hvíti riddarinn skildu jöfn á Kótelettuleiknum

2. deild: Selfoss og Hvíti riddarinn skildu jöfn á Kótelettuleiknum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Selfoss 2 - 2 Hvíti riddarinn
0-1 Aron Daði Ásbjörnsson ('28 )
1-1 Aron Lucas Vokes ('52 )
2-1 Viðar Örn Kjartansson ('55 , víti)
2-2 Aron Daði Ásbjörnsson ('77 )
Lestu um leikinn
Selfoss fékk Hvíta riddarann í heimsókn í 2. deild í dag. Það er líf og fjör á Selfossi um helgina þar sem Kótelettan er í fullum gangi.

Gestirnir náðu forystunni þegar Aron Daði Ásbjörnsson vippaði yfir Benjamín Jónsson í marki Selfyssinga.

Aron Lucas Vokes jafnaði metin fyrir Selfyssinga snemma í seinni hálfleik. Þeir náðu forystunni strax í kjölfarið þegar Viðar Örn Kjartansson skoraði úr vítaspyrnu.

Aron var nálægt því að bæta þriðja markinu við en skaut rétt yfir markið úr góðu færi.

Aron Daði Ásbjörnsson jafnaði metin fyrir Hvíta riddarann eftir að Benjamín varði boltann fyrir fætur hans.

Jón Daði Böðvarsson var hársbreidd frá því að tryggja Selfyssingum sigurinn í blálokin en skotið fór rétt framhjá beint úr aukaspyrnu.

Selfoss er í 3. sæti með 20 stig en Hvíti riddarinn er í 9. sæti með 13 stig.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Haukar16+1935
2Selfoss16+529
3Kári16+1526
4Fjölnir16+825
5Víkingur Ó.16-225
6Kormákur/Hvöt16+1324
7Dalvík/Reynir16-121
8Magni16-1518
9KFA16+217
10Þróttur V.16-716
11Hvíti riddarinn16-916
12KFG16-2813
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.