Hvernig hefur Tottenham efni á þessu?

Mateus Fernandes var keyptur á 85 milljónir punda frá West Ham.

Mynd: Tottenham

Hjálmar og Ingimar.

Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Það hefur ekkert félag á Englandi farið jafn ákveðið inn í félagaskiptagluggann nú í sumar og Tottenham. Eftir tvö tímabil sem voru langt undir væntingum virðist allt benda til þess að ný stjórn félagsins ætli að snúa blaðinu við með afgerandi hætti.
Þessi frétt er hluti af grein sem birtist 7. júlí á áskriftarvef Fótbolti.net. Umfjöllunin er í heild sinni hér fyrir neðan, boðið er upp á ókeypis viku áskrift gegn skráningu.
Hægt er að nálgast allar upplýsingar um áskriftarleiðina hér.

Eyðsla Tottenham hefur vakið spurningar þar sem félagið endaði í 17. sæti á síðasta tímabili og verður ekki í neinni Evrópukeppni á næsta tímabili.
Hvernig hefur Spurs eiginlega efni á þessu?
„Það er margt hægt að segja um Daniel Levy en eitt af því væri að hann er góður rekstrarmaður. Klúbburinn hefur verið afar vel rekinn í gegnum tíðina og búið að stækka alla tekjupósta talsvert á síðustu árum. Rekstrarkostnaður hefur verið með lægra móti. Þannig að þessi tvö 17. sæti segja lítið um stöðuna," segir Ingimar Helgi Finnsson, stuðningsmaður Tottenham.
„Félagið hefur verið rekið með langtum lægri launakostnaði en öll hin stærstu félögin og hlutfall tekna sem fer í laun mun lægra heldur en hjá flestum ef ekki öllum félögum í deildinni."
Hjálmar Örn Jóhannsson, sem er einnig stuðningsmaður Spurs, bendir á að Tottenham sé enn meðal tekjuhæstu félaga Englands.
„Deildarsætið segir ekki alla söguna. Tottenham eru enn eitt tekjuhæsta félag Englands með gríðarlegar tekjur af leikvanginum, sjónvarpssamningum og styrktaraðilum. Auk þess eru félagaskipti oft greidd í afborgunum yfir nokkur ár. Félagið er því fjárhagslega sterkt þrátt fyrir slakt tímabil."
„Þetta er besta útskýringin sem ég hef séð: Tottenham fær um 60 milljónir punda í tekjur árlega af tónleikum og öðrum viðburðum á Tottenham Hotspur Stadium. Eins og einn stuðningsmaður orðaði það á samfélagsmiðlinum X: 'Til allra þeirra sem mættu á hnefaleikakvöldin til að syngja 'We hate Tottenham' - takk fyrir að fjármagna endurreisn félagsins. Og takk fyrir að borga 13 pund fyrir Daniel Levy NFL-pylsuna," segir Hjálmar.

TENGT EFNI
„Þetta höfum við aldrei séð áður" - Hvað er að gerast hjá Tottenham?