Fotbolti.net
12.08.04 - 18:48
Elvar Geir Magnússon

Fitz Hall til Crystal Palace (Staðfest)

Fitz Hall til Crystal Palace (Staðfest)
Canon
Crystal Palace hefur keypt varnarmanninn Fitz Hall frá Southampton á 1,5 milljónir punda. Hall er 23 ára og tók samningsboði Palace seinnipart dags. Iain Dowie þjálfari liðsins var líka með Hall undir sínum væng þegar hann var með Oldham þannig að nú liggja leiðir þeirra aftur saman.
Það var ekki vilji Southampton að selja Hall en hann vildi sjálfur fara til Dowie sem bindur miklar vonir við leikmanninn. "Það er frábært að fá Fitz í liðið. Hann á eftir að spila stórt hlutverk í liðinu á komandi árum." sagði Dowie.

Southampton leitar nú að varnarmanni í stað Fitz og hefur Rupert Lowe stjórnarformaður liðsins víst einn sérstakan í huga, ekki er vitað hver það er.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.