Fotbolti.net
12.08.04 - 20:22
Elvar Geir Magnússon

Samuel Eto'o til Barcelona (Staðfest)

Eto'o í dag.  Hann fær treyju númer 9 hjá Barcelona.

Eto'o í dag. Hann fær treyju númer 9 hjá Barcelona.

Canon
Kamerúnski sóknarmaðurinn Samuel Eto'o er kominn til Barcelona frá Real Mallorca. Hann var kynntur sem nýr leikmaður Börsunga í kvöld og bindur það enda á þær vangaveltur að Real Madrid, sem átti helminginn í honum, myndi selja hann til Liverpool sem hluta af kaupverði fyrir Michael Owen.
"Hann er ungur en samt sem áður reynslumikill leikmaður sem hefur leikið gríðarlega vel, bæði fyrir Mallorca og landslið sitt." sagði Carles Puyol fyrirliði Barcelona.

Eto'o kostaði um 20 milljónir punda og er sjöundi leikmaðurinn sem gengur til liðs við Barcelona fyrir leiktímabilið. Liðið endaði í öðru sæti í fyrra og hefur nú keypt leikmenn fyrir um 50 milljónir punda. Það eru Deco, Henrik Larsson, Ludovic Giuly, Juliano Belletti, Silvinho og Edmilson.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.