Fotbolti.net
12.10.04 - 08:40

Milan Stefán Jankovic hættur hjá Keflavík (Staðfest)

Milan Stefán Jankovic hættur hjá Keflavík (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hjalti Þór Hreinsson

Milan Stefán Jankovic er hættur störfum sem þjálfari meistaraflokks Keflavíkur. Þetta kemur fram á heimasíðu félagsins en við greindum frá því í gær að hann væri líkega að hætta. Milan var fyrsti kostur knattspyrnudeildar Keflavíkur til að halda áfram sem þjálfari liðsins en hann var óákveðinn um framtíð sína hjá félaginu.
Honum varu gefnir kostir á því að svara hvort hann vidi vera áfram en fresturinn rann út í gær. Ekkert svar barst og því lætur Milan Stefán af störfum hjá félaginu. Stjórn deildarinner er þegar byrjuð að leita að eftirmanni hans.

Undir stjórn Milan Stefáns náði Keflavík fimmta sæti í efstu deild karla í sumar auk þess sem liðið vann sjálfan bikarmeistaratitilinn. Samkvæmt okkar heimildum mun Milan Stefán taka við þjálfun hjá Grindavík.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.