12.11.04 - 12:29
Magnús Már Einarsson
Keller lánaður til Southampton (Staðfest)

Keller í baráttu við Nistelrooy.


Keller í baráttu við Nistelrooy.

Kasey Keller markvörður Tottenham hefur verið lánaður til Southampton í eitt már samkvæmt BBC. Keller sem að er 34 ára Bandaríkjamaður æfði með Southampton í morgun og er líklegt að hann muni leika með liðinu gegn Portsmouth.
Antti Niemi aðalmarkvörður Southampton og Paul Smith varamarkvörður eru báðir meiddir og hefur þriðji markvörðurinn Alan Blayney leikið síðustu tvö leiki Southampton en nú á Keller að taka stöðu hans.
