Kristinn Steindórsson og Ingólfur Sigurðsson eru við æfingar hjá bikarmeisturum Víkings R. þessa dagana samkvæmt heimildum Fótbolta.net.
Kristinn er í leit að nýju félagi eftir að samningur hans við FH rann út á dögunum.
Hinn 29 ára gamli Kristinn kom til FH frá sænska félaginu GIF Sundsvall fyrir sumarið 2018. Hann spilaði sautján leiki með FH í Pepsi-deildinni í fyrra og tólf leiki í sumar, þar af tíu í byrjunarliði. Síðari hluta tímabils spilaði hann lítið.
Kristinn spilaði mest á miðjunni hjá FH en fyrr á ferlinum spilaði hann meira á kantinum, meðal annars hjá uppeldisfélaginu Breiðabliki.
Hinn 26 ára gamli Ingólfur spilaði þrettán leiki á miðjunni með Leikni R. í Inkasso-deildinni í sumar en samningur hans þar rennur út um áramótin.
Ingólfur var á sínum tíma á mála hjá Heerenveen í Hollandi en hann hefur skorað 31 mark í 134 meistaraflokksleikjum á Íslandi.
Sjá einnig:
Kristinn Steindórs á förum frá FH - Vill festa sig í ákveðinni stöðu (1. október)
Athugasemdir