Markvörður Manchester City, Ederson, átti að vera á varamannabekknum hjá liði sínu í gær.
City var öruggt áfram upp úr sínum riðli fyrir leik sinn gegn Dinamo Zagreg í gærkvöldi. Pep Guardiola, stjóri City, ákvað því að hvíla sinn aðalmarkmann í Meistaradeildinni.
City var öruggt áfram upp úr sínum riðli fyrir leik sinn gegn Dinamo Zagreg í gærkvöldi. Pep Guardiola, stjóri City, ákvað því að hvíla sinn aðalmarkmann í Meistaradeildinni.
Claudio Bravo stóð vaktina í gær en Ederson var tekinn úr hópnum eftir að hann hafði verið tilkynntur.
Scott Carson tók sæti Ederson á bekknum vegna þess að Ederson varð óglatt. City sigraði leikinn, 1-4 og endaði í toppsæti síns riðils.
UPDATE: @edersonmoraes93 is feeling unwell so has been replaced by @SCarsonOfficial on the bench.
— Manchester City (@ManCity) December 11, 2019
Subs | Carson, Walker, Sterling, Zinchenko, Angelino, De Bruyne, Harwood-Bellis
Athugasemdir